Hvernig er hægt að spila eða standa sig yfir getu? Það sem menn gera er væntanlega það sem þeir geta.
Hvernig hljómar þetta...
- Bílasalinn: "Hér er ég með eldgamla handónýta bíldruslu, en stundum skilar vélin afköstum yfir getu og þá er þetta þvílíkur eðalvagn!"
- Námsmaðurinn fer ólesinn í próf, kann ekkert en stendur sig síðan yfir getu og fær 10.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli