föstudagur, 22. október 2004
sunnudagur, 10. október 2004
Talsettar sjampóauglýsingar
Talsettar sjampóauglýsingar er eitt áhugaverðasta sjónvarpsefni sem um getur. Oftast eru tvær konur sýndar spjalla saman. Umræðuefnið er að sjálfsögðu sjampó. Virðast alltaf óendanlega glærar, sérstaklega í talsettum útgáfum þar sem varirnar hreyfast ekki í réttu samhengi við orðin. "Varstu að lita hárið?" "Nei, ég litaði fyrir fjórum vikum" "ó, þá hlýtur það að vera kjóllinn". "Flott hár, glansandi og engir klofnir endar?" "Nei með nýja loreal er ég laus við klofna enda"Sjampó er umræðuefni sem ætti að taka upp á öllum betri vinnustöðum og elliheimilum. Hvet fólk til að fylgjast með klofnum endum og nefna það ef það tekur eftir slíku við viðkomandi.
Eru svona sjampókonur til í alvöru? Maður spyr sig. Er þetta umræðuefni til annars staðar en í auglýsingum? Hvert er heimurinn þá að fara?
Af gefnu tilefni bið ég fólk að gera athugasemdir undir nafni. Það er voðalega auðvelt að skýla sér í nafnleysinu og vaða uppi með þvælu eins og eitthvað lið kaus að gera þegar ég skrifaði um verkfallið um daginn. Frekar lélegt að leiðrétta það sem rétt er og allt auðvitað nafnlaust.
Fólk kaus þetta verkfall yfir sig með því að kjósa enn eina ferðina Davíð og félaga. Ríkið á að fara að koma með peningana til að leysa deiluna. Þetta er fáránlegt, svona langt verkfall í dag á Íslandi, "velmegunarríkinu". Tóm er fyrir skattalækkanir blablabla. Ekki man ég hvað var síðasta góða verk þessarar stjórnar, kannski að ráða Jón Steinar eða henda Kristni úr þingnefndum. Vafasamt.
Ekki er ólíklegt að George Bush verði aftur kosinn Bandaríkjaforseti. Oft heyrist að bera skuli virðingu fyrir öllum skoðunum. Hvernig er hægt að bera virðingu fyrir þeim sem hyggjast kjósa Bush. Hann hefur sýnt svo ekki verður um villst að hann er grasasni. Er meirihluti Bandaríkjamanna virkilega svo heimskur að hann kjósi manninn í annað sinn? Vona ekki.
laugardagur, 9. október 2004
Radiohead er ótrúlega vinsæl hljómsveit. Platan Hail To the Thief þykir ægilega frábær og fersk og ég veit ekki hvað og hvað. Ég hrífst ekki sérstaklega af þeirri plötu sem margir segja að sé þeirra besta. Oft og mörgum sinnum hef ég sett þessa plötu í tækið og reynt að heyra hvað það er sem hrífur fólk svona ofboðslega við þessa hljómsveit. Ég hef ekki heyrt það ennþá. Á plötunni eru reyndar þrjú eða fjögur ágæt lög. Meginþorrinn af þessu finnst mér hins vegar bara vera gaul og væl. Ég viðurkenni fúslega að nokkuð er varið í sum eldri lög sveitarinnar.
Thom Yorke er söngvari sveitarinnar, letilegur vælukjói sem hefur meikað það. Fyrir hvað? Fyrir að gaula um eigin eymd? Sjálfsvorkunn og volæði? Þetta er maður sem lítur út fyrir að baða sig í þunglyndislyfjum. Hann virðist hafa byrjað að söngla um eymdina, verður síðan frægur og hugsar þá: "ég get svosum haldið áfram fyrst þetta er vinsælt" og haldið áfram svona með hálfum hug. Svo hefur þetta bara slegið svo rækilega í gegn að hann getur ekki hætt.
Papar eru frábærir, Interpol eru frábærir, Creedence Clearwater eru frábærir en hvernig sem ég reyni heyri ég ekki þetta ofsalega yndislega og frábæra við Radiohead.
Mamma er ekki heima
Nú er móðir mín í Brandararíkjunum. Það þýðir:-skilja má eftir diska og önnur matarílát á víð og dreif um húsið.
-ekki þarf að taka til í herbergi.
-skítuga sokka má skilja eftir við ísskápinn eða sjónvarpið. Reyndar hvar sem er.
-ég get verið úti í tvo daga eða eitthvað án þess að koma heim á milli og fá ræðuna um björgunarsveitina eða að áhyggjufull móðir hringi sí og æ.
-Ótakamarkaður aðgangur að bíldruslunni.
-Ekki þarf að setja föt í þvott
-Ekki þarf að henda rusli í ruslið.
Gallinn er sá að ég þarf að laga allt til áður en hún kemur heim aftur svo allt sé slétt og fellt.
miðvikudagur, 6. október 2004
Draumaflæði
Upp á síðkastið hefur mig dreymt næstum aðra hverja nótt. Rosalegt. Eina nóttina var ég uppi í sveit og sá kettling stökkva á lamb, læsa í það klónum og drepa það síðan með miklu hvæsi. Síðan var fíflinu lógað.Í nótt dreymdi mig að ég lenti í matarboði með stærðfræðikennaranum. Var ég afar kumpánlegur og taldi alveg gefið að það ætti eftir að skila mikið bættri kennaraeinkunn. Sjálfsblekking þar á ferð.
Gildi menntunar
Stundum efast ég um gildi menntunar. Hér í einni elstu menntastofnun landsins læri ég bull og kjaftæði á borð við lífræna efnafræði. Ég læri um CH3OHbleble og cis - trans (systir hans?) og allir tímarnir fara í það að kennarinn skrifar CH3OH H3Obleble og mismunandi byggingareiginleika og formúlur. Þessi námsgrein er algjört bull og mun aldrei nýtast mér.Svo er það í íslenskunni: hákveður lágkveður þegiðu.