Enska
Oftast þegar ég tala ensku líður mér eins og ég sé að reyna að vera "kúl." Ég þarf mjög reglulega að minna sjálfan mig á að ég tala ensku vegna þess að útlendingarnir skilja ekki íslensku.
Í vikunni sem leið skoðaði ég gleraugnaumgjarðir í tveimur gleraugnabúðum, með umgjarðarkaup í huga. Í þeirri fyrri var ég spurður hvort ég hefði eitthvað ákveðið í huga. Ég neitaði og fékk þá að sjá fullt af umgjörðum, með ólíkum eiginleikum og útliti. Sumar umgjarðanna sagði sölumaðurinn að hefðu mjög sterkan karakter. Misjafnt var hve sveigjanlegar umgjarðirnar voru, hann sýndi mér t.d. tvennar umgjarðir frá sama framleiðanda sem voru úr sama efni og líkar í útliti, en á öðrum þeirra mátti sveigja armana upp og niður og borga rúmar 10 þúsund aukalega fyrir það. Ekki tókst að sannfæra mig um nauðsyn þessa möguleika.
Í seinni gleraugnabúðinni voru mér líka sýndar umgjarðir með ólíkum sveigjanleika, en þar virtist karakter umgjarðanna vera það sem helst greindi þær hverja frá annarri. Meira áberandi umgjarðir voru umgjarðir með sterkari karakter. Mér leist yfirleitt betur á lítt áberandi umgjarðir. En auðvitað fór ég síðan að velta fyrir mér hversu sterkur karakter ég væri og hvort gleraugnaumgjarðir gætu styrkt karakter minn. Gæti ég ef til vill styrkt karakter minn um fjórðung, bara með því að punga út 30 þúsundum aukalega í umgjarðir með nautsterkum karakter? Þetta krafðist verulegrar umhugsunar og heilabrota, en á endanum var ég nógu sterkur karakter til að fúlsa við gylliboðum um umgjarðir með dúndrandi sterkum karakter og yfirleitt hærra verði eftir því. Menn hafa misjafnan smekk, en ég trúi varla að þeir sem hafa smekk fyrir áberandi umgjörðum líti á þær sem merki um sterkan karakter, en hvað veit maður.
Umtalað er hve sterkur karakter Sævar er. Það skýrist af þremur þáttum:
Gleraugnaumgjarðirnar sem hann notar skýra 50% af karakter hans, jeppinn 30%
og bílalánið 20% (hann fékk sér bílalán með virkilega sterkum karakter sko, svo sagði sölumaðurinn að minnsta kosti).
Áðan gúgglaði ég orðið "þaulsætnu", vegna þess að ég ætlaði að nota það í ritgerð og vildi vera viss um að ég væri ekkert að rugla með það. Google taldi sig vita betur og spurði hvort ég ætti við "palestínu" eins og meðfylgjandi mynd sýnir:
Auðvitað hefði verið möguleiki að ég hefði velt fyrir mér: "Hvar eru nú aftur stöðug átök og stríð sem sagt er frá í fjölmiðlum? Er það ekki í Þaulsætnu? Best að gúggla það".
Annars er "þaulsætnu" og "palestínu" ekki sérstaklega líkt.
Um daginn sagði einhver, minnir að það hafi verið einn íþróttafréttamanna Sjónvarpsins ,að handboltalandsliðið hefði spilað yfir getu á móti Frökkum á HM í fyrra þegar þeir jörðuðu þá. Ég hef heyrt fleiri nota þetta orðalag áður.
Hvernig er hægt að spila eða standa sig yfir getu? Það sem menn gera er væntanlega það sem þeir geta.
Hvernig hljómar þetta...
Flokkur/flokkar: Íslenska
Flokkur/flokkar: Íslenska
"Að vísu virðist andúð fólks á talsetningunni vera meiri eftir því sem það er verr skrifandi á íslensku. Þannig agnúast einn netverji út í talsetninguna í næstu færslu á eftir frásögn af keppnisferð "til Akranesar". Guð forði honum frá að heyra íslensku talaða."Þetta minnir mig á hvað mér finnst frábært þegar fólk er með stólpakjaft og talar bandvitlaust mál. Ósjálfrátt fer maður að bera virðingu fyrir slíku fólki og leggur við hlustir. "Þessi er efnilegur" hugsar maður og sér viðkomandi fyrir sér sem næsta forseta eða biskup. "Láttu hann heyra það!" langar mann að segja við mannvitsbrekkuna þar sem hún eys úr skálum reiði sinnar og visku, t.d. með því að beygja bæjarnöfn svona:
Flokkur/flokkar: Íslenska

Flokkur/flokkar: Íslenska