Ég drakk alltaf þekktustu bjórana af því ég hélt að það væri svo ódýrt, en svo fór ég að reikna.
Nú drekk ég bara Ceres Royal og er snöggur að því.
Ceres Royal fæst nú hér á Íslandi við mikinn fögnuð. Ég hélt alltaf að hann héti Royal Faxe síðan ég smakkaði hann fyrst í Danmörku. En Ceres og Faxe bryggeri hafa örugglega verið sameinuð einhverntímann ef marka má google. Ferskur og framandi. Já.
föstudagur, 11. febrúar 2005
fimmtudagur, 10. febrúar 2005
Ef þú verður EKKI drukkinn, þá:
-Geturðu komist hjá því að æla alla nóttina.
-Eyðirðu ekki öllum peningunum þínum í kvöld sem þú mans hvort eð er lítið eða ekkert eftir.
Þetta er brot af því sem stendur í bæklingi með heitinu Hvað veist þú um áfengi? Lýðheilsustöð dreifði þessum bæklingi í skólanum af því að árshátíðin er í kvöld. Einnig eru sýnd áhrif af níu bjórum á 80 kg karlmann "AUGLJÓS EITRUNAREINKENNI, SJÁLFSSTJÓRN Á BAK OG BURT". En þetta er ekki það eina. Eftir 13 bjóra: "HÆTTIR AÐ HAFA STJÓRN, t.d. Á ÞVAGBLÖÐRU". Hver kannast ekki við það? Aðeins of margir bjórar og þvagblaðran er farin að stökkva og berja og reynir að sleppa út úr líkamanum, æðir um stjórnlaust. Einnig stendur að áfengi sé skaðlegt ÖLLUM líffærum. "Ef þú vilt hugsa vel um heilsuna og líf þitt ættirðu að sleppa því að drekka, fresta því eða drekka a.m.k. ekki mikið í hvert skipti".
Já, allir sem verða drukknir æla alla nóttina.
Annar eins áróður hefur varla heyrst. Sumt af þessu er hreinlega lygi og að ljúga í forvarnarskyni gefst ekki sérstaklega vel. Það hefur frekar áhrif í öfuga átt.
Það hefði mátt taka saman efni bæklingsins í eina setningu:
EF ÞÚ DREKKUR ÁFENGI ÞÁ DEYRÐU OG FERÐ TIL HELVÍTIS!
miðvikudagur, 9. febrúar 2005
Hlaupandi með nærbuxur á hausnum
Einu sinni þegar ég var ungur drengur, 7 eða 8 ára hélt ég afmælisveislu á heimili mínu í sveitinni. Bauð krökkunum úr bekknum og vinum. Á afmælisdaginn þegar veislan var alveg að byrja var ég frekar spenntur. Ég tók brók úr fataskúffunni minni og setti á höfuðið og ætlaði út. Mamma kallaði á eftir mér: "Hvert ertu að fara, ætlarðu ekki að taka á móti gestunum?". "Nei, ég ætla út". Svo hljóp ég út í garð með brókina á hausnum og hljóp í hringi í kringum húsið. Hring eftir hring eftir hring. Nú tóku gestirnir að streyma að einn af öðrum. Mamma fór til dyra og sagði; "Hann er ekki inni, ég held að hann sé úti í garði, gáðu bara". Svo gengu gestirnir inn í garðinn, ekki leið á löngu þar til þeir mættu afmælisbarninu á hlaupum með nýju höfuðskreytinguna. Afmælisbarnið hafði vit á því að gera hlé á hlaupunum til að heilsa gestunum en ekki hafði það vit á því að taka brókina af hausnum, ekki strax.Þegar afmælisbarnið var orðið ögn rólegra tók það þó höfuðdjásnið niður og blandaði geði við gestina eins og er til siðs.
Þetta var óvenjulegasti afmælisdagur sem ég man eftir.
mánudagur, 7. febrúar 2005
Samkennd
Mesta samkennd sýna Íslendingar þegar úti er snjór og hálka. Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar hef ég spólað og setið fastur á bíl móður minnar sem er á heilsársdekkjum. Hefur þá alltaf einhver komið eins og kallaður og rétt fram hjálparhönd og ýtt bílnum af stað. Einu sinni var ég búinn að sitja pikkfastur í tíu mínútur og rótspóla fram og aftur í 20 cm þykku snjólagi. Ég var búinn að reyna að ýta bílnum sjálfur og reyna ýmsar hundakúnstir, til að koma honum af stað en allt kom fyrir ekki og orðinn snælduvitlaus. Þá kom allt í einu kappi í kuldaúlpunni sinni og bombaði kvikindinu af stað og ég gat ekið mína leið.Í hálkunni hér á Íslandi gildir máltakið: Þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst.
Svo hressir það að geta rétt fram hjálparhönd.
Dronninglund
Dronninglund heitir bær á Jótlandi í Danmörku. Þangað flutti pabbi skömmu fyrir jól og starfar nú sem túlkur þar í bæ. Hef ég nú sett tengil á heimasíðu bæjarins. Þangað munum við systkinin fara um páskana og líka í sumar. Það kemur til greina að flytja út til pabba eftir MR og fara í háskóla í Álaborg.sunnudagur, 6. febrúar 2005
Bob Marley & The Wailers
Hef hlustað mikið á disk með Bob Marley & The Wailers undanfarið sem er geysilega skemmtilegur. Trenchtown Rock, Stir It Up, Soul Rebel, Duppy Conqueror, Lively Up Yourself og Small Axe eru nokkur góð úr safni kappans. Svo var grein um hann í Mogganum í dag því hann yrði sextugur væri hann á lífi. Ég upplifi Kúbustemninguna aftur þegar ég hlusta á þetta en þar var reggae í hávegum haft. Held ég verði að fara að flytja þangað. Lítið varið í íslensku reggaesveitina HjálmaEkki næstu Bob Marley & The Wailers.
laugardagur, 5. febrúar 2005
Kveikt í tunglinu
Á þriðjudagskvöld sat ég við eldhúsborðið með fjórar ristaðar brauðsneiðar með smjöri og osti og gæddi mér á. Dyrabjallan hringdi. Tveir geðveikir menn (Henrik og Tómas) stóðu í dyrunum og sögðu mér að koma út, þeir væru að verða of seinir á stjörnufræðifyrirlestur. Ég skildi ekki æsinginn yfir slíku en samþykkti þó að fara.Náðum á fyrirlesturinn í tæka tíð. Veitingar voru í boði; kaffi og hraunbitar. Svo hófst fyrirlesturinn og Sverrir Guðmundsson talaði um stjörnufræði af áhuga og kunnáttu. Frábært var að sjá hve mikinn áhuga fundarmenn höfðu á þessu. Ég setti upp gleraugun og spekingssvipinn og þóttist hafa gríðarlegan áhuga líka. Margir fundarmanna réttu upp hönd og komu með fróðleiksmola sem þeir höfðu sankað að sér. Svo var einn sem punktaði meira að segja niður hjá sér það markverðasta og hlógum við að honum. Á eftir Sverri kom Sævar og hélt áfram stjörnufræðitali. Hann var mjög fyndinn af því að hann var svo geðveikur. Hann skaut því m.a. að hve heimskulegt stríð Bandaríkjamanna í Írak væri og að milljarðar á milljarða ofan hefðu farið í stríðsreksturinn. Þessum milljörðum væri miklu betur varið í geimrannsóknir, það væri svo mikið sem ætti eftir að kanna þarna uppi. "Þegar ég verð orðinn yfirmaður NASA..." sagði hann og var greinilega með háleit markmið. Önnur frábær setning frá honum: "Ef það væri meira súrefni á tunglinu væri rosalega gaman að prófa að kveikja í því". Ýmsir draumórar og hlógum við að því öllu saman. Þeir félagar höfðu líka miklar áhyggjur af ljósmengun í borginni og þótti hún nú alveg vera búin að skíta á sig í þeim efnum og að stjörnuskoðunarmenn hefðu ekkert almennilegt athvarf í borginni. Sævar hvatti síðan fundarmenn til að mæta á fund um ljósmengun sem yrði á næstunni.
Þetta var frábær fundur og sérstaklega var gaman að sjá fólkið sem sótti hann.´Ég setti inn tengla á kappana tvo.
Svona var umhorfs á fyrirlestrinum.
föstudagur, 4. febrúar 2005
Ofsóknir Útvarpsréttarnefndar
Það nýjasta er að Skjár Einn megi ekki sýna enska boltann með enskum þulum. Útvarpsréttarnefnd komst að þeirri niðurstöðu. Þorsteinn Gunnarsson sendi þeim erindi þar sem hann spurðist fyrir um lögmæti lýsinganna.Hvers vegna komust þeir ekki að þessu fyrr? Þessar ensku lýsingar hafa verið á leikjum síðan snemma síðastliðið haust.
Rökin fyrir þessari ákvörðun eru mjög þunn. Útvarpslög kveða víst á um að þetta sé ólöglegt. Hafa útvarpslög breyst síðan í haust? Hvernig getur þetta allt í einu verið ólöglegt núna? Ef það er rétt þá þarf einfaldlega að breyta þessum lið útvarpslaga og þó fyrr hefði verið. Svo er það málverndunarstefnan. Þau rök eru mjög ankanaleg. Nóg er nú víst fyrir af erlendu efni sem fólk horfir á óíslenskað. Þetta þarf að vera á íslensku svo allir skilji. Óþolandi bull. Þeir sem ekki skilja ensku og hafa áhuga á enska boltanum eru lítill minnihlutahópur. Á kannski næst að banna sjónvarp af því að blindir geta ekki horft á það?
Þar að auki eru ensku þulirnir oftast meiri fagmenn en þeir íslensku og skemmtilegra að hlusta á þá.
þriðjudagur, 1. febrúar 2005
Afi ökumaður
Afi minn hefur frá ómunatíð verið frábær ökumaður. Í seinni tíð hefur að vísu aðeins fjarað undan aksturshæfileikum hans. Í fyrra ók hann um vegina í sveitinni eins og hann var vanur. Allt í einu DUNK! skellur á bílinn. "Hvaða...er ég einhver trúður hér?" býst ég við að afi hafi þá hugsað. Svo steig hann út úr bílnum sem hafði drepið á sér og athugaði hvað hefði gerst. Bíddu...þarna var stór keðja sem hafði verið strengd þvert yfir veginn og skærgult skilti hengt á hana sem á stóð VEGAVINNA. Hver leggur þránd í götu afa míns? Á jeppanum eiga honum að vera allir vegir færir.Afi ók síðan lúpulegur heim á skökkum og skældum jeppanum og blótaði sjálfsagt Vegagerðinni í hljóði. Hann sagði frá fjandans keðjunni sem var fyrir. Hún var samlit veginum og það var skærgula skiltið líka. Helvítis skærgulkeðjulituðu vegir! Sjónin í afa er fullkomin, bara eins og þegar hann var tvítugur. Sjónin bregst aldrei.
Aldrei!
Eftir þetta atvik ákvað afi eftir ráðleggingar hinna og þessara að bregða sér til augnlæknis, þó ekki væri nema til að fá staðfestingu á því að sjónin væri 100%. En annað kom á daginn. Sjónin var frekar vafasöm, afi hafði um nokkurt skeið séð ljós á bílum sem hann mætti tvöfalt (eða kannski frekar fjórfalt (fjögur framljós) þar sem ljósin eru alltaf tvö). Það á nú að vera í lagi ef hann veit alltaf hvor ljósaparanna eru raunveruleg. Nema hvorug séu raunveruleg og þau réttu séu mitt á milli hinna fjögurra.
Nú notar afi gleraugu við aksturinn og er orðinn ögn traustari ökumaður en fyrir augnlæknisheimsóknina.