laugardagur, 30. september 2006
þriðjudagur, 26. september 2006
Síðustu mánuðir Hallans
Hin fræga sjoppa, Hallinn, lokar í desember. Þessi sjoppa hefur í gegnum árin verið stór hluti af því að vera í MR. Fyrir nemendur (og suma starfsmenn) Menntaskólans mun brotthvarf Hallans skilja stórt skarð eftir sig. Þarna hafa þeir komið og fengið sitt peppó og kók ótal sinnum, sumir jafnvel daglega og mætt hlýlegu viðmóti Möggu (og að sjálfsögðu Kidda áður en hann lést fyrir nokkrum árum).Þótt flestir kúnnar Hallans hafi verið MR-ingar á sjoppan einnig aðra fastakúnna. Sumir koma þangað sérstaklega til að spjalla við Möggu, enda skemmtileg og góð kona með mikinn húmor. Sumir fyrrverandi nemendur MR hafa líka oft sést í Hallanum.
Síðan ég byrjaði í Háskólanum í haust hef ég tvisvar litið inn í Hallann og heilsað upp á Möggu og fengið mér peppó. Ekki hafa þær heimsóknir svikið frekar en fyrri heimsóknir þangað og án vafa mun ég líta oftar inn áður en sjoppan lokar. Hvet ég aðra fyrrum MR-inga til að drífa sig þangað líka því nú fer hver að verða síðastur.
mánudagur, 25. september 2006
Útsendarinn
Þegar maður hringir út kannanir fyrir Gallup virðist óumflýjanlegt að einn og einn viðmælandi telur mann vera spillingarbarn, útsendara Satans, strengjabrúðu markaðsráðandi afla og boðbera öxulvelda hins illa. Enn fremur telja þeir mann fjandsamlegan lífríki jarðar. Enginn þeirra hefur reyndar orðað þetta nákvæmlega svona, en það má lesa milli línanna.Sumir sjá spyrla Gallup sem gullið tækifæri til að losa út margra ára innbyrgða reiði og einstaka sinnum er ég feginn að ekki hefur enn verið þróuð tækni til að bíta fólk í gegnum símtól. Svona tryllt fólk er reyndar afar fátítt en eðli málsins samkvæmt eftirminnilegra en aðrir. Á síðustu vakt lenti ég t.d. í tveimur öskrandi ljónum, en það er óvenjumikið.
Þeir sem eru merktir með rauðu x-i í símaskránni verða gjarnan óðastir: "HVAR FÉKKSTU ÞETTA NÚMER!?" "Hmm, það poppaði upp á skjáinn hjá mér" "JÁ, ÉG ER MERKTUR MEÐ RAUÐU Í SKRÁNNI!". Svo "skemmtilega" vill til að rauða merkingin gildir aðeins gegn símasölu, ekki könnunum. Þegar við segjum fólki þetta sefast það oftast nokkuð og getur ekkert sagt, ágætt að hafa þó reglurnar með sér í slíkum tilfellum. Einn maður fór í mál gegn Gallup vegna þess að hann var merktur með rauðu en fékk hringingu frá fyrirtækinu. Gallup vann málið, enda með réttinn sín megin.
Tenglar
Þessu bloggi hef ég fylgst með um skeið við umtalsverðan fögnuð, enda gríðarlega hnitmiðað. Nú hef ég bætt því við tengla hér til hliðar.laugardagur, 23. september 2006
Spaugstofan fær uppreisn æru
Um daginn minntist ég á að síðasti þáttur af Spaugstofunni hefði verið óvenjugóður. Þátturinn í kvöld var afbragð, sá besti í mörg ár. Næstum öll atriðin voru fyndin og eins og alþjóð veit er það ekki daglegt brauð á þeim bænum. Engir fúlir Halldórs Ásgrímssonar-brandarar og samsærisgaurinn (leikinn af Erni) fékk bara örstutt klipp í lokin sem var ekki sérstaklega truflandi fyrir þáttinn í heild.Þeir voru ótrúlega beittir, blönduðu saman málefnum líðandi stundar og öðru í glæsilegri fléttu. Nú er bara að bíða og sjá hvort þeir halda dampi eða hvort þetta þynnist út og verður sama gamla.
Flokkur/flokkar: Spaugstofan
Veðurklúbburinn á Dalvík
Þegar ég vaknaði í morgun var það fyrsta sem mér datt í hug Veðurklúbburinn á Dalvík. Á ég að túlka þetta sem fyrirboða? Um hvað þá? Þetta er ekki í fyrsta skipti sem mér dettur eitthvað undarlegt í hug þegar ég vakna.Þegar ég fór að velta Veðurklúbbnum meira fyrir mér mundi ég ekki eftir að hafa séð spá frá þeim á þessu ári. En Klúbburinn er ekki hættur því þegar ég sló honum inn á Google fann ég sumarspá frá þeim. Ég veit ekkert hversu sannspáir þeir hafa verið til þessa.
Veðurklúbburinn á Dalvík hefur markaðsráðandi stöðu á sínu sviði. Enginn annar veðurklúbbur er starfræktur á landinu svo ég viti. Nú er spurning hvort pláss er fyrir annan slíkan klúbb á markaðnum. Tækju neytendur honum fagnandi? Spárnar þyrftu að vera hnitmiðaðar og markmið fyrirtækisins að vera skýr: að spá alltaf rétt. Fara þyrfti eftir ströngustu gæðastöðlum og hafa gæðaeftirlit. Markviss mannauðsstjórnun og fagmannleg vinnubrögð yrðu að vera aðalsmerki slíks klúbbs.
Ég hef hugsað mér að stofna nýjan veðurklúbb. Það ætla ég að gera eftir 40 ár. Þangað til ætla ég að kynna mér markaðinn betur svo fyrirtækið verði eins vel í stakk búið til að mæta samkeppni og auðið er. Með aðstoð dyggra manna verður unnin slík hernaðaráætlun að annað eins mun aldrei hafa sést.
föstudagur, 22. september 2006
miðvikudagur, 20. september 2006
Tá og göngur
Ég nenni ekki að lesa níundu blaðsíðu af fjörtíu sem settar voru fyrir morgundaginn í bókinni The Globalization of World Politics um realisma og liberalisma, þótt nokkuð skemmtilegar séu. Því hef ég kosið að blogga.Helginni eyddi ég fyrir norðan. Þar smalaði ég fé fyrir Einar bónda. Óvenjuvel gekk að smala þetta árið og aldrei þurfti ég að þvælast upp á fjöll, hóla eða hæðir utan minnar smalaleiðar. Þetta mátti einkum þakka norðangolu sem blés í fangið á smölum jafnt sem kindum. Kindurnar skynjuðu að veturinn var á leiðinni og voru því fúsar að fara heim á bæi. Við smölunina var allur nýjasti fjarskiptabúnaður notaður, margir höfðu farsíma og allir höfðu talstöðvar, allt þráðlaust.
Önnur stóra táin á mér hefur ekki verið til stórátaka undanfarið. Í göngunum versnaði hún töluvert og var orðin svo bólgin að ég gat ekki farið í skó á samsvarandi fæti. Þegar læknirinn í fjölskyldunni sá tána sagði hann að þetta væri hrikalegt að sjá (mjög inngróin tánögl og stokkbólgin tá) , hringdi tvö símtöl og græjaði þannig tíma fyrir mig í aðgerð á mánudeginum eftir helgi. Þetta græjaði hann þrátt fyrir að skurðlæknirinn, félagi hans, væri fullbókaður þann dag og hann sjálfur sennilega líka. Skurðlæknirinn var tilbúinn að hliðra einhvern veginn til í planinu svo ég kæmist að.
Á mánudaginn fór ég í táaðgerðina. Fjölskyldulæknirinn (sem er svæfingalæknir) deyfði tána og skurðlæknirinn skar. Allt gekk ljómandi vel og í miðri aðgerð tilkynntu þeir mér að aðgerðin yrði "on the house". Það var alveg ótrúlega höfðinglegt og rausnarlegt boð, sem ég þáði. Þeir voru báðir að vinna aðeins lengur en þeir áttu að gera, út af mér, og splæstu síðan aðgerðinni. Þetta kallast fyrsta flokks þjónusta. Sæmi ég þá félaga hiklaust höfðingjanafnbót.
Táin er á góðum batavegi.
þriðjudagur, 19. september 2006
mánudagur, 18. september 2006
Þjóðremba og hópsturlun
Magni:
Söngvarahæfileikar: 5.
Fyrir að vera íslenskur: 5.
-------------------------------
Samtals: 10.
Eiður Smári:
Knattspyrnuhæfileikar á alþjóðamælikvarða: 7
Fyrir að vera íslenskur: 3
-------------------------------
Samtals: 10.
o.s.frv.
Niðurstaða: Þegar Íslendingar hafa sig í frammi erlendis má alltaf beita þeirri einföldu reiknireglu að það sem vantar upp á hæfileika næst fram með því að þeir eru íslenskir.
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)
