sunnudagur, 18. júlí 2004
laugardagur, 17. júlí 2004
laugardagur, 10. júlí 2004
laugardagur, 3. júlí 2004
Mc'donalds auglýsingin
Hver samdi Mc´donalds auglýsinguna sem er alltaf í sjónvarpinu: "i'm lovin it"? Þetta er versta auglýsing sem ég hef séð. Það þarf fæðingarhálfvita til að semja svona. Ég hef ekki hitt nokkurn sem þykir auglýsingin góð. Sjálfur tek ég alltaf fyrir augu og eyru þegar þessi viðbjóður kemur í sjónvarpinu. Verst er þegar strákurinn treður hamborgaranum í andlitið á hinum. Þessi auglýsing fer svo einstaklega mikið í taugarnar á mér að ég mun aldrei versla við Mc'donalds aftur. Ekki það að ég hafi oft keypt þar.Fýlupokar og rugludallar
Það er töluvert mikið um fólk sem röflar og býsnast yfir EM sem nú er að ljúka. "Þessi bolti seinkar fréttunum mínum" "Af hverju þarf að seinka fréttum út af fótbolta?". Sumu fólki þarf að segja að þegja. Það er rifist og skammast og röflað og vælt. Getur þetta lið ekki bara horft á fréttir á Stöð 2? Lifir það ekki af án sjónvarpsfrétta RÚV? Hvað með að kíkja á textavarpið? Það er andskotann ekki neitt í fréttum núna. "ANDRÉS ÖND VARÐ SJÖTUGUR Í DAG" "Þórsmörk: Skagfjörðsskáli 50 ára" "SA-könnun: Miðaldra fólk góðir starfsmenn". Eru þetta fréttirnar sem fólk má ekki missa af? Þessar keppnir eru á tveggja ára fresti og standa yfir í u.þ.b. mánuð hverju sinni, á þeim tíma þegar gúrkutíð er mikil í fréttum.Ég er farinn að velta fyrir mér hverjir það eru eiginlega sem horfa ekki á EM. Amma mín horfir á EM. Ég er búinn að vera hjá ömmu núna í rúmar tvær vikur af því ég var að flytja og nýja húsið hefur ekki verið afhent. Ég hef horft á nokkra leiki með ömmu og það er sérstök stemmning. Amma horfir svona meira með öðru auga. Hún situr í stólnum og prjónar en lítur reglulega upp til að sjá hvað er að gerast í leiknum. Oftast hefur hún athugasemdir um leikinn. Ef tækling sést segir hún: "Ógeðslegir fautar eru þetta". Um daginn sá hún Edgar Davids spila og sagði: "Þessi getur nú ekkert hlaupið, það er svo þungt á honum hárið. Svo slæst það utan í hann". Það er ýmislegt í þessu sem þarf að athuga. Ég fellst að sjálfsögðu á allar athugasemdir ömmu.
Merkilegt hvað ömmur hafa miklar áhyggjur af matarvenjum. Alltaf á morgnana er ég spurður: "Ertu búinn að fá þér eitthvað?"
Vinnustaðagrínarar
Á bækistöðinni þar sem ég vinn eru tveir menn sem sumir myndu kalla einfeldninga. Þeir eru alltaf með mér í hádegismat og bregða þá gjarnan á leik. Um daginn sagði annar þeirra við einn strákinn á bækistöðinni: "Ég vildi að þú værir bróðir minn því þú ert með bílpróf. Þá gætirðu keyrt mig hvert sem er. Svo gætum við farið saman að kaupa geisladiska og skoðað frímerkin mín". Hann sagði líka: "Þú ert svo gáfaður að vera með bílpróf."Þessi ummæli vöktu lukku. Þessir menn vekja gjarnan lukku.
Hakkavél
Nú er skólaárið liðið og ég náði prófum. Sumir tóku bekk í annað sinn og náðu ekki prófum. Þeir eru í vondum málum og þurfa að skipta um skóla. Stærðfræðikennari nokkur kenndi mér um x og f(x) og líkti því við hakkavél. Í vélina færi x og út kæmi f(x). Ég líki bekkjunum í MR við hakkavél. T.d.: í vélina fer 4.bekkingur og út kemur 5.bekkingur. Þetta er þó ekki algilt. Stundum stíflast vélin þegar nemanda er troðið í hana. 4.bekking er troðið í vélina, hún stíflast og gangtruflanir heyrast. Hún stíflast ekki endilega vegna þess að nemandinn sé feitur, sjaldnast er það ástæðan. Ástæðan fyrir stíflun er oftast sú að nemandi er ekki nógu duglegur að læra. Einnig getur heimska átt hlut að máli en það er fátítt. Ef 4.bekkingur er duglegur að læra ætti hann að renna örugglega gegnum vélina og koma jafnvel út sem gourmet 5.bekkjarhakk, þ.e. 5.bekkjarnemandi.Þetta er fáránleg líking.
sunnudagur, 20. júní 2004
Fótatak
Ég var að labba úr Smáranum í gær eftir miðnætti. Ekki voru margir á ferli. Skyndilega heyrði ég fótatak fyrir aftan mig. Ég gekk áfram. Fótatakið fyrir aftan mig magnaðist. Þá fór ég að labba hraðar. Það gat þess vegna verið einhver morðóður geðsjúklingur fyrir aftan mig. Hvað veit ég? Það er nóg að geðveiku liði þarna úti. Það var reyndar frekar líklegt að þetta væri morðóður geðsjúklingur. Enn jókst fótatakið. Geðsjúklingurinn var væntanlega kominn með stóra öxi á loft núna og sem hann hyggðist höggva mig með við fyrsta tækifæri. Ég gekk hraðar og hárin á höfðinu risu. Ég er reyndar ekki með nein hár á höfðinu því ég er snoðaður, en ímynduð hár á höfðinu risu. "Excuse me" heyrðist þá. Ég ákvað þá að stoppa. Ekki það að svona brjálæðingar geti ekki sagt "Excuse me". En ég ákvað samt að stoppa. Ég leit aftur. Þar var enginn brjálæðingur, bara meinleysislegur útlendingur. Hann kom síðan og spurði mig til vegar. "What is the best way to downtown Kópavogur?". Ég sagði honum það eftir bestu getu. Eru þá ekki allir sáttir?Kannski hefur maður séð of margar hryllingsmyndir.
laugardagur, 12. júní 2004
EM 2004
Það eru nokkrar reglur sem virðast alltaf vera við lýði í kringum EM:-Þjóðverjar eru alltaf vanmetnir.
-Frökkum spáð titlinum.
-Helstu spámenn hafa rangt fyrir sér.
Stórleikur Frakklands og Englands er á sunnudagskvöld. Ég tippa á Englendinga. Það sem segir í blöðunum að vörn Englands sé veikur hlekkur er djöfulsins kjaftæði. Það er hins vegar alltaf erfitt að stoppa Henry. Samt sem áður vinna Englendingar.
Lettar og Rússar munu kúka á sig. Ég spái ekki um sigurvegara. Held með Dönum.
Spenningur mikill. Þetta verður án efa frábær keppni.
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)