mánudagur, 28. nóvember 2005
sunnudagur, 27. nóvember 2005
Íslenski bachelorinn
Flestir virðast sammála um að botninum sé náð í íslenskri dagskrárgerð. Kynnirinn er líklega mesti amatör sem sést hefur í íslenskum þætti fyrr og síðar. En þetta skiptir ekki máli. Þatturinn fær áhorf og það er væntanlega aðallatriðið fyrir stjórnendur Skjás eins. Fólk horfir á þetta til að sjá hvað þetta er lélegt, hlær að þessu og hneykslast.Var það ef til vill tilgangur þáttarins?
Þorsteinn Guðmundsson komst nokkuð vel að orði á Edduverlaunahátiðinni um daginn: "Í íslenska Bachelornum keppast fimmtán einstæðar mæður um smið með varalit. Ég þarf ekkert að horfa á það í sjónvarpinu, ég get alveg séð það bara niðri á Kaffi Reykjavík"
föstudagur, 25. nóvember 2005
Vafasamar athugasemdir
Um daginn flutti ég fyrirlestur í íslensku ásamt nafna mínum um íslenskt skáld. Í dag fékk ég síðan skriflegan dóm um fyrirlesturinn frá kennaranum. Kennarinn gerði athugasemd við orðalag mitt að skáldið hefði verið "allur í kerlingunum" sem var þó satt. Einnig gerði kennarinn athugsemd við að ég skyldi segja að hann "nennti ekki lengur að standa í þessu bulli og flutti heim" um það þegar skáldið flutti aftur til Íslands frá Vesturheimi.Kennaranum finnst greinilega ekki við hæfi að reyna aðeins að halda nemendum vakandi í slíkum fyrirlestrum. Fátt er leiðinlegra en að hlusta á of hátíðlega fyrirlestra um einhverja svona fokkin gaura nema gaurarnir hafi verið þeim mun ferskari. Þá sofna oftast nokkrir. Þeir sem þó halda sér vakandi horfa út um gluggann og pæla í einhverju allt öðru.
fimmtudagur, 24. nóvember 2005
Ríki og kirkja
Almennt er ég á móti einkavæðingu. Ég er á móti mikilli einkavæðingu í skólakerfinu og ég er á móti einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu. Aðskilnaður ríkis og kirkju þykir mér hins vegar ljómandi góð hugmynd. Ég tel ekki nauðsynlegt að hafa eina ríkistrú og finnst að menn eigi að fá að stunda "kukl" og blót og fleira ef þeir kjósa það. Ríkið gæti sparað nokkuð mikið á því að setja kirkjuna út á markaðinn. Flestir íslendingar stunda kirkjuna lítið. Helst til að gifta sig, jarða sig, skíra sig og fara í jólamessu. Fyrir utan þessa viðburði standa kirkjurnar gapandi tómar árið um kring.Heilbrigð samkeppni á trúarmarkaðnum væri mjög hressandi. Það væri nú gaman ef bisnisskarlar ættu þjóðkirkjuna. Þjóðkirkjan færi að auglýsa:
Hefur þú bragðað messuvínið okkar?
-Þjóðkirkjan
Nýir og þægilegir bekkir í næstu kirkju
-Þjóðkirkjan
Svo færu stórkaup að sjást á hinum frjálsa trúarmarkaði og fyrirsagnir blaðanna væru:
Þjóðkirkjan kaupir Fíladelfíusöfnuðinn
Ásatrúarfélagið hf. kaupir Óháða söfnuðinn
Þjóðkirkjan skilar hagnaði á öðrum ársfjórðungi
Þjóðkrikjan hf. skilaði 1,5 milljarða hagnaði á öðrum ársfjórðungi samanborðið við þriggja milljarða tap á fyrsta ársfjórðungi. Hagnaðinn nú má þakka hagræðingu og kaupum Þjóðkirkjunnar á Fíladelfíusöfnuðinum...
Þetta er of freistandi til að sleppa því.
miðvikudagur, 23. nóvember 2005
mánudagur, 21. nóvember 2005
Gagnrýni: White Stripes í Laugardalshöll
Eftir að íslensk kúkahljómsveit (dæmigerð íslensk kúkarokkhljómsveit þar sem hljóðfærunum ægir saman í graut og söngvarinn galar eitthvað kjaftæði) að nafni Jakobínarína hafði spreytt sig á sviðinu í dágóða stund stigu Meg White og Jack White á svið. Meg settist við trommusettið og Jack stóð með gítarinn. Það var kátt í höllinni þegar þau byrjuðu fyrsta lagið, Blue Orchid, sumir fengu vægar hjartsláttartruflanir við dynjandi taktinn. Svo komu tvö eða þrjú eldri lög sem voru ekkert svakaleg og eins og oft brást hljóðkerfið eitthvað (furðulegt að þessi hljóðkerfi virðast alltaf klikka eitthvað). Jack var mikill meistari á gítarinn og ekki síður að syngja. Meg var mjög fyndin á trommunum, ruggaði allan tímann og var eins og kjáni, en stóð sig þó vel. Þau lög sem stóðu upp úr voru:Blue Orchid
Jolene
Red Rain
Seven Nation Army
Hotel Yorba
My Doorbell
Little Ghost
I Just Don't Know What To Do With Myself
Ball And A Biscuit
En ég saknaði nokkurra laga á þessum tónleikum, uppáhalds White Stripes lags míns, Hypnotize og einnig:
The Air Near My Fingers
Fell In Love With A Girl
In The Cold, Cold Night (Meg syngur)
Well It's True That We Love One Another (bæði syngja)
Girl, You Have No Faith In Medicine
Hefðu mátt setja þessi lög inn í prógrammið og henda nokkrum af þessum elstu út því þau voru einfaldlega ekki jafn góð í upphafi ferilsins. Að öðru leyti var þetta dúndurgott. Meg söng bara stutta lagið sitt af Get Behind Me Satan, Passive Manipulation.
Einkunn:8,7
sunnudagur, 20. nóvember 2005
Halló halló
Klukkan er 9:04 á sunnudagsmorgni. Ég væri ekki vaknaður nema út af því að ég vaknaði við babblið í þeim gömlu á hæðinni fyrir neðan (þær gera greinilega ekki ráð fyrir að nágrannar sínir hafi verið í blússandi sveiflu í gærkvöldi). Held að þær hafi verið með gamlar kerlingar í heimsókn hjá sér. Svo heyri ég aldrei orðaskil, nema eitt og eitt orð og það er greinilega ein kerling sem talar manna mest og manna hæst. Ég heyri líka á tóninum í röddinni að henni er mikið niðri fyrir, greinilega að tala um eitthvert þjóðþrifamál. Annars hljómar þetta einhvernveginn svona: "Já, því að babbalabbalabbababb..."Hún ætlar bara aldrei að þagna, kerlingin.
laugardagur, 19. nóvember 2005
Svakalegur
Flottur jakki
(Raggi Bjarna)
Eb
Tvirilidirilidí...
G# Bb
Tvirilidirilidí... (x3)
Eb
Ég fékk eitt sinn jakka og ég fór í hann
og flestar stelpur þráðu heitt að hitta þennan mann.
Sem vildi bara hlusta á hið villta bít,
ég vildi bara jakka úr tvít, tvít, tvít.
G#
Flottur jakki... (tvít, tvít, tvít)
Eb
Flottur jakki... (tvít, tvirilídí)
Bb
Ég átti lakkrísbindi
G# Eb
og skyrtan hún var skjannahvít.
Helst ég vildi alltaf hlusta á þetta bít,
ef heyrist þessi taktur út á gólfið ég þýt.
Í úrhelli eða sól
alltaf vil ég heyra rock ?n ról.
Flottur jakki... (tvít, tvít, tvít)
Flottur jakki... (tvít, tvirilídí)
Ég átti lakkrísbindi
og skyrtan hún var skjannahvít.
Sóló...
G#
Buxurnar hjá okkur voru þröngar þá,
Eb
og þá var jafnað skótauið með mjóa tá.
G#
Með briljantín í hárinu ég steig á stokk
Bb
og stelpurnar þær vildu bara heyra rokk.
Ég fékk eitt sinn jakka og ég fór í hann
og flestar stelpur þráðu heitt að hitta þennan mann.
Sem vildi bara hlusta á hið villta bít,
ég vildi bara jakka úr tvít, tvít, tvít.
Flottur jakki... (tvít, tvít, tvít)
Flottur jakki... (tvít, tvirilídí)
Ég átti lakkrísbindi
og skyrtan hún var skjannahvít.
Buxurnar hjá okkur voru þröngar þá,
og þá var jafnað skótauið með mjóa tá.
Með briljantín í hárinu ég steig á stokk
og stelpurnar þær vildu bara heyra rokk.
Ég fékk eitt sinn jakka og ég fór í hann
og flestar stelpur þráðu heitt að hitta þennan mann.
Sem vildi bara hlusta á hið villta bít,
ég vildi bara jakka úr tvít, tvít, tvít.
Flottur jakki... (tvít, tvít, tvít)
Flottur jakki... (tvít, tvirilídí)
Ég átti lakkrísbindi
og skyrtan hún var skjannahvít.
föstudagur, 18. nóvember 2005
Kafteinn Flygenring
Þeir sem horfðu á Edduverðlaunin halda e.t.v. að Silvía Nótt sé aðalsjónvarpsstjarna Íslands í dag. Þar skjátlast þeim. Hver er það sem hefur sölsað undir sig bæði RÚV og 365 ljósvakamiðla? Mikið rétt, kafteinn Flygenring. Kafteinn Flygenring er aðalmaðurinn í Kallakaffi sem sýnt er RÚV og vakið hefur heimsathygli. Ekki nóg með það, heldur er kafteinninn stjórinn á Ástarfleyinu sem sýnt er á Sirkus við frábærar undirtektir. Eru það ekki nægar sannanir fyrir því hver aðalmaðurinn er í dag?Ég hef ákveðið að taka mér þennan meistara til fyrirmyndar. Alltaf ef ég lendi í klípu spyr ég sjálfan mig: "Hvað skyldi kafteinn Flygenring gera í þessari stöðu?". Ef ég veit ekki hvernig skal svara einhverri spurningu: "Hvernig skyldi kafteinn Flygenring svara þessu?". Þetta hugarfar kemur alltaf til bjargar á ögurstundu.
fimmtudagur, 17. nóvember 2005
Gagnrýni: Corpse Bride
Hef séð tvær frábærar myndir frá Tim Burton (Charlie and the Chocolate Factory og Big Fish). Corpse Bride er ekki leiðinleg. Hins vegar vantar eitthvað upp á söguna, hún er auk þess of tilviljanakennd. Svo er of mikið af söngatriðum sem hafa mjög takmarkað skemmtanagildi. Brandararnir hefðu mátt vera betri. Eftir stendur að Tim Burton getur gert betur.Einkunn: 7,5.
Gerast áskrifandi að:
Comment Feed (RSS)