laugardagur, 27. október 2007
laugardagur, 20. október 2007
Vínmenning?
Ein helsta röksemd talsmanna afnáms einkaleyfis ríkisins á verslun með áfengi er sú að vínmenning sé svo slæm hér á landi og vísa þá sérstaklega í "ástandið í miðbænum um helgar". Þeir nefna þjóðir sunnar í álfunni þar sem verslun með áfengi er frjáls (s.s. Spán og Frakkland) og fara fögrum orðum um vínmenninguna þar. Sigurði Kára Kristjánssyni o.fl. talsmönnum nýs frumvarps virðist sérstaklega hugleikið að "geta kippt rauðvínsflösku til að hafa með steikinni heim úr búðinni".
Flutningsmenn nýs frumvarps segja að misnotkun sumra á áfengi eigi ekki að fá að hindra aðra í að kaupa það úti í búð. Þeir telja að áfengisverði verði ekki náð niður nema með þessum aðgerðum. Pétur Blöndal sagði að nauðsynlegt væri að "svipta áfengi þessum heilagleika sem það virtist hafa umfram aðrar vörur" á Alþingi um daginn.
Mér finnst mjög merkilegt að sú aðgerð að færa áfengi úr ÁTVR í matvöruverslanir eigi að bæta vínmenninguna á Íslandi eða "ástandið í miðbænum um helgar". Ég hef sjaldan heyrt hæpnari rök. Ég reyni að hugsa mér lögin ganga í gildi og vínmenninguna batna hratt í kjölfarið - hér verður fólk alemnnt brosandi út að eyrum með Bónusvín sem fékkst á frábæru verði í hönd, sitjandi úti í kvöldroðanum eftir ljúffenga steikina, hlustandi á gítarleik. Stór skærbleikur Bónusgrísinn á flöskunni brosir kumpánlega til fólksins og það dreypir aftur á vínglasinu. Í miðbænum sést ekki lengur óhófleg drykkja, heldur mun siðmenntað fólk, léttmarinerað í rauðvíni og bjór, marsera á milli skemmtistaða.
Áfengi er sveipað "þessum heilagleika" sem Pétur Blöndal nefndi vegna þess að það er ólíkt öðrum vörum. Fólk verður ekki drukkið af kornflexi og gulrótum. Af hverju vísa flutningsmenn sérstaklega til vínmenningar S-Evrópu? Af hverju taka þeir ekki frekar dæmi frá nágrannaþjóðum, sem eru líkari Íslendingum? Ég sá ástandið í miðbæ Kaupmannahafnar í ágúst, örstutt frá Strikinu voru hópar af 14 -16 ára unglingum sem sátu í hópum á götunni með bjór, væntanlega úr matvörubúðum. Þeir eldri voru margir gjörsamlega á eyrunum (svipað og í miðbæ Rvk. eða verra) og sóðaskapurinn var miklu verri en ég hef séð í miðbæ Reykjavíkur um helgar. Í Danmörku er áfengi selt í matvörubúðum. Þetta bendir mjög sterklega til þess að "ástandið í miðbænum" í Reykjavík tengist á engan hátt því hvort áfengi fáist í matvöruverslunum eða ekki. Auðvelt er líka að draga þá ályktun að einmitt vegna þess að það fæst í venjulegum búðum (þar sem erfitt er að halda úti ströngu eftirliti) í Danmörku, hafi verið svona mikið af krökkum að drekka fyrir allra augum.
miðvikudagur, 17. október 2007
Fíflagangur
Fáir hafa sjálfsagt tekið eftir að búið er að tilkynna úrslit í nafnasamkeppninni um Háskólatorg I og II auk tengibyggingar, á lóð Háskóla Íslands. Í frétt um málið á heimasíðu skólans segir að Háskólatorg I hlýtur nafnið Háskólatorg, en 15 manns stungu upp á því nafni. Einn heppinn var dreginn úr hópnum og fær 100.000 kr. í verðlaun.Nú hlýtur sú spurning að vakna, til hvers var samkeppni um nafn á Háskólatorg I, ef nafnið Háskólatorg er síðan valið?
Hvar liggur snilldin? Var dómnefndin gjörsamlega bergnumin yfir snilli þessara 15 manns sem fengu þá flugu í höfuðið að senda inn vinnuheitið, en sleppa númerinu aftan við?
Flokkur/flokkar: Almennt
laugardagur, 13. október 2007
Gillette
Í helstu lágvöruverðsverslunum landsins, Krónunni og Bónus, eru seld rakvélablöð og aðrar rakstursvörur frá Gillette. Engar vörur í þessum flokki eru frá öðrum en Gillette. Fyrirtækið virðist hafa mjög sterka markaðsráðandi stöðu og í krafti hennar okra svínslega á vörum sínum, kannski er álagning íslensku búðanna á þeim líka allt of há. Í þessari frétt segir frá mönnum sem stálu þessari "munaðarvöru" úr verslunum á höfuðborgarsvæðinu að andvirði 900.000 kr. Ég get ekki verið hissa á að menn velji einmitt þessa vöru til að stela, ef tekið er tillit til verðsins. Hvort þeir ætluðu síðan að selja á lægra verði eða hvað hef ég ekki hugmynd um.Síðast þegar ég gáði kostar pakki með fjórum venjulegum rakvélablöðum frá Gilette, um þúsund kall, bæði í Bónus og Krónunni. Einhver er að græða of feitt á þessu, sennilega Gillette. Fyrir nokkrum mánuðum var neyslustýringin farin algjörlega úr böndunum, því hvorki Krónubúðin né Bónusbúðin sem ég fór í átti venjuleg rakvélablöð né sköfur (tók eftir því þótt ég ætlaði bara að kaupa blöðin), eina sem þær áttu voru blöð fyrir rafdrifnar sköfur og slíkar sköfur. Ég keypti svona rafdrifna sköfu og blöð með, en það hefði ég betur látið ógert. Nú eru tveir möguleikar í stöðunni, skorturinn á venjulegum blöðum gæti hafa verið tilviljun eða þá að fyrirtækið var einfaldlega að stýra neyslu, þ.e. að fólk skyldi kaupa rafdrifnar sköfur eða ekki neitt.
Svo er annað, rafdrifnu sköfurnar eru miklu verri en hinar. Að nota rafdrifna sköfu er eins og að vera með vott af Parkinson sjúkdómnum og miklu líklegra að skera sig en ella. Þetta er jafnheimskulegt og að framleiða rafdrifin glös - þú telst heppinn ef sopinn fer rétta leið og ef brennandi kaffið skvettist ekki bara á þig og borðið og gólfið líka.
Kannski er góð hugmynd að hafa alla hluti rafdrifna. Gæti gert daglegt líf fullt af litlum en spennandi og ögrandi verkefnum - tekst raksturinn í dag án þess að skera sig?
Kem ég kaffinu úr spriklandi bollanum og ofan í maga?
Tekst mér að lesa víbrandi bókina?
Flokkur/flokkar: Neytendur
þriðjudagur, 9. október 2007
Heima
Heimildarmynd um Íslandstúr hljómsveitarinnar Sigur Rósar sumarið 2006 nefnist Heima og er sýnd í Háskólabíói. Myndin sýnir alls kyns staði innanlands og frá tónleikum Sigur Rósar og Amiinu vítt og breitt. Tónlist leikur að sjálfsögðu stóran þátt eins og sjónarspilið og inn á milli sjást viðtalsbútar við liðsmenn sveitanna. Af þeim bútum fannst mér augljóst að þetta væri stórskrýtið fólk og komst ekki hjá því að velta fyrir mér hvar í ósköpunum það hefði hitt hvert annað í upphafi - svolítið eins og álfar út úr hól. Sá einmitt fyrir mér að eitt þeirra hefði labbað út úr hól, annað hefði rekið á land á Hornströndum, það þriðja hefði poppað út úr eyðibýli í afskekktri sveit, það fjórða lent með loftsteini uppi á fjalli, það fimmta rúllað út úr MH o.s.frv... Eftir þetta hefðu þau síðan öll hist fyrir furðulega tilviljun uppi á hálendi og ákveðið að stofna hljómsveitirnar tvær.Í þessari mynd smellpassar tónlistin við myndina og það er eiginlega eins og landslagsmyndirnar séu einmitt það sem vantar upp á tónlistina og öfugt, þ.e. að þetta bakki hvort annað upp. Til þess að sannreyna þetta ímyndaði ég mér Korn, Limp Bizkit og Pink þenja raddböndin og hamra slagverkið í takt við íslensku náttúrumyndyrnar. Það gekk engan veginn upp og mér varð eiginlega flökurt þegar þessar blöndur komu upp í hugann.
Loks ber að geta þess að myndin hafði fáránlega róandi og afslappandi áhrif, sem veitti reyndar ekki af núna því síðustu tvær helgar hafa svo til eingöngu farið í heimanám auk virku daganna fyrir utan að það var próf sl. laugardagsmorgun. Þetta er líklega hin fullkomna mynd til þess að sjá eftir slíka törn. Myndin fær því bestu meðmæli.
Einkunn: 10/10.
Flokkur/flokkar: Kvikmyndir
þriðjudagur, 2. október 2007
Metnaður
Eigandi Steua Búkarest hefur ólgandi metnað fyrir félag sitt. Tapi liðið fyrir Arsenal í kvöld, verður þjálfarinn einfaldlega rekinn (heimild). Annað hvort er eigandinn flippaður grínari, eða snarsjóðandi sturlaður.Ef allir eigendur liða í ensku úrvalsdeildinni beittu sömu hótun á knattspyrnustjóra liða sinna, væru sex þeirra búnir að missa starfið á þeim átta umferðum sem búnar eru. Ef hótunin virkar til þess að Steua vinnur, er augljóst að fleiri eigendur ættu að leika sama leik, því þá er akkilesarhæll Arsenal fundinn.
Flokkur/flokkar: Fótbolti
föstudagur, 28. september 2007
Búrma/Myanmar
Fjölmiðlar hafa undanfarið fjallað mikið um vargöld í Búrma vegna herstjórnar sem stjórnar með harðri hendi þar, í Myanmar.En þetta er einmitt sami staðurinn, Búrma og Myanmar. Sjálfsagt hefur það valdið ruglingi meðal almennings, sem hlýtur að spyrja sig hvort óánægja með herstjórn sé í Búrma eða Myanmar eða bæði á sama tíma, tveir fyrir einn. Það sem veldur enn meiri ruglingi er þegar fréttamenn virðast ekki einu sinni sammála um hvernig eigi að bera fram Myanmar, þannig bera sumir fram [míanmar], aðrir [mjanmar] og enn öðrum er þetta allt saman gjörsamlega ofviða og reyna þá að klastra þessu tvennu einhvern veginn saman, sem hljómar þá kannski [míamjanmar].
Skyldu ritstjórar fjölmiðla leggja starfsmönnum línurnar á innanhússfundum -> "Skýr ritstjórnarstefna okkar fjölmiðils er að tala um MJANMAR, en ekki eitthvað bölvað búrma eða míanmar. Misbrestur hefur orðið á þessu hjá vissum fréttamönnum, taki það til sín sem eiga."
Mér finnst Búrma flottasta heitið, sé það notað þarf enginn að velkjast í vafa um framburðinn nema einhver sérvitringurinn kjósi að túlka nefnið sem Brúmma.
miðvikudagur, 26. september 2007
Tvennt
- Fékk bréf frá lífeyrissjóði. Þar stóð að ég hefði unnið mér inn rúmar þúsund krónur á mánuði í ellilífeyri frá sjóðnum við 67 ára aldur. Hvað á ég að gera með þær upplýsingar? Hlakka til? Fara strax að bíða eftir krónunum þúsund fullur eftirvæntingar? Verður þessi lífeyrissjóður yfirhöfuð til þegar ég verð 67 ára? Alltaf eru þessi bréf frá lífeyrissjóðum eins, þau segja frá lágri mánaðarlegri upphæð sem maður fær eftir nokkra áratugi. Með fylgir svokallað fréttabréf sem sýnir nokkur súlurit og hvernig viðkomandi lífeyrissjóður hefur skilað bestu ávöxtun allra lífeyrissjóða síðustu 10 ár, og þetta virðist gilda um alla lífeyrissjóði. Allir hafa þeir skilað bestu ávöxtun undanfarin ár með einhverri reiknireglu sem þeir búa sjálfir til.
- Mæli með Borgarhjólum á Hverfisgötu. Fór með hjólið í viðgerð þangað eftir að hafa nánast lent í sjálfheldu á því um daginn þegar ég var á fullu spani niður brekku og skyndilega virkuðu bremsurnar mjög illa. En þeir löguðu bremsurnar sem virka núna frábærlega og töluvert betur en þær gerðu þegar hjólið var nýtt og settu bretti á það í leiðinni eins og ég óskaði eftir. Þetta kostaði fimm þúsund kall, sem er bara aðeins meira en að kostar að fylla bensíntank einu sinni. Svo verð ég ekki nema fimm mánuði að safna fyrir þessari viðgerð þegar ég verð 67 ára með peningunum frá lífeyrissjóðnum góða.
sunnudagur, 23. september 2007
Hló þá imam

Ekki imaminn í Hvidovre, en imam þó.
Athyglisverðasti atburður Danmerkurferðarinnar í lok ágúst var líklega heimsóknin í moskuna í Hvidovre. Einn daginn römbuðum við fram á skilti sem vísaði á moskuna. Við biðum ekki boðanna heldur örkuðum sem leið lá þangað. Þegar komið var að moskunni var ekki um að villast, enda moskuleg með eindæmum. Í moskugarðinum stóð einkennisklæddur maður sem virtist vera vörður. Hann var frekar skuggalegur og horfði á okkur illu auga þegar við nálguðumst. Ekki var hægt að útiloka að hann væri vopnaður. Við ákváðum þó að tala við hann og þá bauð hann okkur velkomna og vísaði okkur inn. Svo fræddi hann okkur smávegis um moskuna og starfsemi og slíkt.
Við hittum merkilega vel á því vikulega bænaathöfnin (messan) var í þann mund að hefjast, eða klukkan hálftvö á föstudegi. Múslimar tóku nú að streyma inn og okkur var leyft að fylgjast með athöfninni, sátum í stólum aftast í hvelfingunni. Imam mætti í pontu og messaði yfir mannskapnum, til skiptis á dönsku og arabísku. Múslimarnir hlýddu á og báðu til Allah inn á milli með tilheyrandi beygjum og teygjum. Söngur á arabísku kom einnig við sögu, bæði hjá imam sjálfum og aðstoðarmanni.
Eftir athöfnina bauð aðstoðarmaður imamsins okkur í te og kökur inni á skrifstofu moskunnar, sem við þáðum. Þar talaði hann um slík trúarbrögð og tók skýrt fram að þeir tilheyrðu afar friðsamri grein islam (værum við í einhverjum vafa um það), þ.e. Ahmadiyya, en hvorki súnní eða sjía, en það mun vera þriðja stærsta grein Islam á eftir hinum tveimur en þó margfalt fámennari. Hann talaði um hvers vegna hann iðkaði þessi trúarbrögð og þar fram eftir götunum. Svo sagði hann að enginn í söfnuðinum kynni arabísku nema imaminn. Það þótti okkur nokkuð skemmtilegt í ljósi þess að hálf messan var á arabísku. Imaminn sjálfur mætti svona við og við inn á skrifstofuna og talaði aðeins við okkur líka.
Imaminn var frekar fyndinn því hann var skælbrosandi allan tímann.Tómas nefndi að kirkjurnar á Íslandi væru nánast tómar árið um kring nema á jólum og páskum. Hló þá imam. Tilhugsunin um tóm trúarhús hefur sjálfsagt verið skondin, enda moskan í Hvidovre troðfull alla föstudaga. Mér tókst að hella tei niður á mig því það var svo brennandi heitt og ég óviðbúinn. Imam var ekki á staðnum þá en hefði hann séð það hefði hann eflaust hlegið dátt.
Þegar við áttuðum okkur á því að aðstoðarmaður imamsins gæti líklega talað við okkur í nokkra daga samfleytt ákváðum við að drífa okkur, enda ekki ætlunin að eyða svo miklum tíma í moskunni þótt aðstoðarmaðurinn væri skemmtilegur, það vantaði ekki. Hann vildi sjálfsagt veiða okkur yfir í múslimatrúna. Að endingu gaf hann okkur bókina Islams svar på vor tids spørgsmål og sagði að í henni væri bæði komið inn á læknisfræði og stjórnmálafræði (hann hafði áður spurt okkur að því hvað við værum að læra), svo við hlytum að hafa gagn og gaman að. Ég reikna með að birta umfjöllun og ritdóm um bókina hér þegar ég verð búinn með hana. Við kvöddum að lokum og þökkuðum fyrir okkur, margs vísari og mettir af kökum og brennandi tei.
Flokkur/flokkar: Almennt
þriðjudagur, 11. september 2007
Sporlaust
Hluti íslensku þjóðarinnar virðist vera horfinn sporlaust. Það gæti maður að minnsta kosti haldið eftir að hafa komið við í verslunum og öðrum þjónustufyrirtækjum undanfarna daga. Í þeim öllum (kannski með örfáum undantekningum) hafa galvaskir útlendingar tekið við og standa vaktina við búðarkassann daginn út og inn. Verslanir biðja viðskiptavini afsökunar á skertri þjónustu vegna manneklu. Kaffiterían í Aðalbyggingu HÍ hefur verið lokuð frá því að skólinn byrjaði í ágúst - enginn hefur fengist í starfið/störfin. Það þarf engan fréttatíma til að segja fólki hvernig staðan er því hún blasir við út um allt.En hvað varð um allt fólkið sem sinnti störfunum? Hvar er konan sem vann í kaffiteríunni? Hvar eru unglingarnir sem afgreiddu á kassanum í matvörubúðinni? Fyrst urðu Íslendingar of fínir til að vinna í fiski, nú virðist vera komið að algengustu þjónustustörfunum.
Ég kom við í bakaríi í gær. Þar afgreiddu tveir útlendingar. Ég giska á að þeir hafi ekki verið á landinu lengi, en þeir töluðu þó hrafl í íslensku og skildu viðskiptavini að mestu leyti miðað við það sem ég sá. Kona sem var á undan mér í röðinni var verulega pirruð á að fólkið skildi ekki um leið hvað hún vildi af bakkelsi og gaf glögglega til kynna við þau að þetta líkaði henni ekki. - En var eitthvað við fólkið að sakast? Það var líklega að vinna vinnu sem enginn annar hefur fengist í. Ef ekki hefði verið fyrir þetta fólk væri bakaríið lokað. Vildi konan það frekar? Ef ekki, hvers vegna í ósköpunum þurfti hún þá að láta svona?
Hvaða störf skyldu Íslendingar flýja næst í stórum stíl? Skrifstofustörf? Fjölmiðlastörf? Framleiðslustörf? Kennarastörf? Get ég átt von á því að mæta einn morguninn í tíma í Háskólanum og þar er enginn Hannes Hólmsteinn að kenna, heldur Hugo Chavez?

"Góðan daginn... í dag ætla ég að fjalla um sósíalismann"


