laugardagur, 23. apríl 2005

Nýtt dagblað

Bjartsýnismenn ætla að stofna nýtt dagblað og mun það koma út frá og með miðjum maí. Því verður dreift ókeypis líkt og Fréttablaðinu. Markmiðin eru þau sömu og Fréttablaðið hafði upphaflega, að skrifa stuttar og hnitmiðaðar fréttir sem fólk getur rennt í gegnum á mettíma.

Ef það er pláss fyrir tvö ókeypis dagblöð á markaðnum skal ég Hundur heita.